← Greinasafn

[ SEO ]

SEO á Íslandi 2026: Þannig kemstu efst á Google

Unio6 mín lestur

Allt sem íslensk fyrirtæki þurfa að vita um leitarvélabestun árið 2026 — frá tæknilegri SEO til efnisgerðar og AI-leitar.

Leitarvélabestun á Íslandi er sérkennileg. Lítill markaður, fáir samkeppnisaðilar á flestum lykilorðum, og notendur leita bæði á íslensku og ensku. Hér er það sem virkar árið 2026.

1. AI-leit breytir öllu

Google AI Overviews, ChatGPT Search og Perplexity eru farin að taka stóran hluta af „zero-click" leit. Þú þarft að skrifa efni sem AI módelin geta vitnað í, skýrt, vel uppsett og með skýrum svörum við spurningum.

2. Tæknileg SEO er grunnurinn

Hraði (Core Web Vitals), structured data (JSON-LD), hrein URL-uppbygging og rétt uppsettur sitemap.xml. Án þessa kemstu hvergi, sama hversu gott efnið er.

3. Skrifaðu fyrir fólk, ekki algrím

Google E-E-A-T (Experience, Expertise, Authoritativeness, Trustworthiness) er orðið mikilvægara en nokkru sinni. Sýndu hver þú ert, hvaða reynslu þú hefur, og af hverju ætti að treysta þér.

4. Íslenska + enska

Margir Íslendingar leita á ensku, sérstaklega í B2B. Hugsaðu vel um hvor tungumálið hentar hvaða leitarorðum, og notaðu hreflang rétt ef þú býður upp á bæði.

5. Innri tenglar eru vannýtt vopn

Góð innri tenglagerð (internal linking) getur lyft heilum vefnum á Google. Tengdu á milli greina, þjónustusíða og verkefnasíða með lýsandi anchor texta.

Viltu SEO úttekt á vefnum þínum? Sendu okkur línu.

SEOGoogleLeitarvélabestunÍsland