[ Þjónusta · Pakkar sem skila árangri ]

Fjölbreytt þjónusta
sérsniðin eftir þörfum.

Stafrænar auglýsingar eru orðnar stór partur af markaðsstarfi. Við hjálpum þér að hámarka dreifingu og svörun frá þínum lykilmarkhópi.

01Auglýsingar

Stafrænar auglýsingar

Við hjálpum fyrirtækjum að setja upp og halda utan um auglýsingar á Meta (Facebook og Instagram) og Google Ads (PPC, Display, YouTube).

Ekki nóg með að við sjáum um auglýsingarnar, heldur færðu aðgang að lifandi mælaborði þar sem allar helstu tölur eru dregnar saman á mannamáli.

MetaGoogle AdsPPCDisplayYouTubeLifandi mælaborð
02Samfélagsmiðlar

Samfélagsmiðlar

Við sjáum um samfélagsmiðla fyrirtækja. Okkar hlutverk er að tryggja að ásýndin sé eins og best verður á kosið.

Náttúruleg dreifing á efni hefur minnkað, en það skiptir máli að sýna fram á virkni og dreifingu á lykilskilaboðum til markhópsins. Við aðstoðum þig við að setja upp birtingaplön fyrir þá miðla sem skipta þitt fyrirtæki mestu máli.

FacebookInstagramTikTokLinkedInBirtingaplanStrategía
03Hönnun

Hönnun og framleiðsla

Það skiptir máli að para réttar aðgerðir við góða framsetningu.

Við aðstoðum fyrirtæki við framleiðslu á markaðsefni, hvort sem það er sniðmát fyrir samfélagsmiðla, grafískir borðar, ljósmyndun, myndbandsframleiðsla eða hreyfigrafík.

SniðmátGrafíkLjósmyndunMyndbandHreyfigrafík
04Póstlistar

Póstlista-markaðssetning

Við erum viðurkenndir samstarfsaðilar Mailchimp og Klaviyo og sjáum um póstlista fyrirtækja. Auk þess bjóðum við upp á kerfi sem leikjavæðir markaðsefni og eykur þannig skráningar og bætir virkni póstlistanna.

Við erum einnig samstarfsaðilar Diskó, SMS-markaðskerfisins sem hjálpar fyrirtækjum að safna símanúmerum og senda viðskiptavinum markviss skilaboð um nýjar vörur, afslætti og tilboð.

MailchimpKlaviyoDiskó SMSAutomationsLeikjavæðing
05Vefsíðugerð

Vefsíðugerð

Við búum til skjótar, fallegar vefsíður og netverslanir með Shopify, Duda og AI-tækni í gegnum Lovable og Claude.

Hvort sem þú þarft kynningarsíðu, flókna netverslun eða sérsniðið kerfi, byggjum við lausnina frá grunni með áherslu á hraða, mælanleika og notendaupplifun.

ShopifyDudaLovableClaudeAI-hönnunNetverslun
06Ráðgjöf

Ráðgjöf

Rétt ráðgjöf skiptir sköpum. Við veitum alhliða ráðgjöf um alla þætti markaðsstarfsins, hvort sem það er samfélagsmiðlastjórnun, grafísk hönnun, myndbandsgerð eða uppsetning á tracking-kóðum.

Við hjálpum þér að finna rétta blöndu af stafrænum ferlum sem hámarka árangur.

Stafræn stefnaAuditTrackingWorkshopsMælingar

[ Hvernig við vinnum ]

Einfalt ferli, skýr árangur.

01

Samtal

Við hittumst, kynnumst fyrirtækinu þínu og förum yfir markmið, markhópa og núverandi stöðu.

02

Stefna

Við setjum saman tillögu með réttri blöndu af þjónustu, sniðna að þínum þörfum og fjárhagsramma.

03

Framkvæmd

Sérfræðingar okkar taka við keflinu og þú færð aðgang að lifandi mælaborði þar sem þú sérð árangurinn.

[ Hafðu samband ]

Eigum við að
skoða þetta saman?