[ Verslunarmannahelgin ]
Verslunarmannahelgin: Allt sem þú þarft að vita fyrir verslóið
Ein stærsta ferðahelgi ársins er handan við hornið. Hér eru TikTok hugmyndir, póstlistatillögur og popup ráð til að nýta helgina sem best fyrir fyrirtækið þitt.

Verslunarmannahelgin er ein stærsta ferðahelgi ársins á Íslandi, og fyrir fyrirtæki er þetta gullið tækifæri til að tengjast fólki, auka sýnileika og byggja upp tengsl við viðskiptavini. Við hjá Unio höfum tekið saman það helsta sem þú þarft að vita, ásamt hagnýtum hugmyndum fyrir samfélagsmiðla, póstlista og popup viðburði.
Allt sem þú þarft að vita fyrir versló!
- 📅 Dagsetningar: 31. júlí til 3. ágúst. Frídagur verzlunarmanna er mánudaginn 3. ágúst.
- 🎪 Hátíðir um allt land: Ein stærsta ferðahelgi ársins, með hátíðum í öllum landshornum.
- 🎵 Þjóðhátíðarlagið 2026: „Flugeldar" í flutningi Birgittu Haukdal og Herra Hnetusmjörs.
Tiktok hugmyndir
Við erum á Tiktok og deilum reglulega hugmyndum fyrir íslensk fyrirtæki. Hér eru níu hugmyndir sem virka fyrir helgina:
- Láttu starfsfólk giska á hvort það verði rigning í Eyjum eða ekki.
- Ef varan þín væri þjóðhátíðarlag, hvaða lag væri það?
- Uppáhalds þjóðhátíðarlag starfsfólks.
- Pakkað í töskur fyrir helgina, hvaða vörur tekur starfsmaðurinn með í útileguna, bústaðinn eða útlönd?
- „Græjum okkur saman fyrir brekkuna."
- Fimm hlutir sem þú tækir með þér í útileguna.
- POV: „Segðu mér að þú sért að fara í útilegu án þess að segja mér það."
- POV: „Fyrsti í vinnu eftir þjóðhátíð."
- Uppáhaldslag fyrir road trip.
Fyrir póstlistann
Póstlistinn er ein arðbærasta rásin þín, ekki gleyma honum yfir helgina. Hér eru fimm hugmyndir að póstum sem hitta í mark:
- Opnunartími: Hvenær er opið hjá ykkur um helgina? Hvenær er síðasti séns að versla eða fá sent heim?
- Ekki gleyma neinu fyrir helgina: Tékklisti með vörum úr versluninni. Hvað þarf fólk að hafa með í ferðalagið frá ykkur?
- Fyrir innipúkana: Eruð þið með lengri opnun eða dagskrá fyrir þau sem eru í Reykjavík?
- Versló playlistinn: Sendu góða playlist og hlýja kveðju inn í helgina.
- Póstur eftir versló: Nú fara allir að koma sér aftur í rútínu, er eitthvað sem fólk þarf að huga að?
Popup um versló
Við elskum sýnileika, og við elskum að hitta fólkið á bak við tjöldin. Ef þú ert að fara á hátíð yfir versló, þá er þetta frábært tækifæri til að auka sýnileika fyrirtækisins.
Gott dæmi er Dóttir Skin á Þjóðhátíð í fyrra. Bara það að dreifa tímabundnum tattoo-um ýtir undir forvitni fólks og skapar minningu tengda vörumerkinu. Popup þarf ekki að vera flókið, oft er einfaldleikinn sterkastur.
Fimm í fötu
Bucket listi helgarinnar
- 🧖♀️ Ein góð sundferð, tvöfalt stig ef þú finnur náttúrulaug með útsýni.
- 🎤 Syngja „Lífið er yndislegt" allavega einu sinni, helst tvisvar og hátt.
- 🎧 Setja Unio playlistann á fullt og láta bílinn hristast.
- 💦 Sjálfa við foss á leiðinni, bónus fyrir regnboga í bakgrunni.
- 📵 Sleppa símanum í heila klukkustund, við lofum, heimurinn heldur áfram að snúast.
Vantar þig playlista fyrir bílferðina?
Við höfum útbúið Unio playlistann fyrir helgina, fullkomið undirspil fyrir road trip, tjaldstæðið eða morgunkaffið eftir langa nótt.
🎧 Hlusta á Unio playlistann á Spotify
Þurfið þið aðstoð með markaðssetningu yfir helgina?
Unio er stafræn markaðsstofa með yfir 10 ára reynslu á íslenska markaðnum. Við hjálpum fyrirtækjum að nýta stórar helgar eins og verslunarmannahelgina til að byggja upp vörumerki, auka sölu og skapa raunveruleg tengsl við viðskiptavini. Hafðu samband ef þú vilt heyra hvernig við getum aðstoðað.